Jörfabakki 6
-
Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
-
Stærð 77 fm
-
Herbergi 3
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 2
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingaár 1969
-
Brunabótamat 43.300.000
-
Fasteignamat 52.850.000
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, baðherbergi, stofu með útgengi út á svalir til suðurs, tvö svefnherbergi auk sérgeymslu í kjallara.
✅ Gott leiksvæði fyrir börn í garðinum.
✅ Sólríkar svalir.
✅ Skóli, leikskóli og helsta þjónusta í göngufæri ásamt nálægð við Elliðaárdalinn.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol, parketi á gólfi og eldri fataskápar með rennihurð
Eldhús er með snyrtilegri ljósri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél og helluborði með viftu yfir.
Stofa með parketi á gólfi með útgengi út á svalir til suðurs.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum og baðkari.
Svefnherbergi með dúk á gólfi og eldri fataskáp með rennihurðum.
Svefnherbergi II með parketi á gólfi.
Geymsla sér í kjallara.
Sameign sameiginlegt salerni er í kjallara, hjóla- og vagnageymsla, þurrkherbergi ásamt sorpgeymslu.
Viðhald síðustu ára á sameign
2018 - Húsið múrviðgert og málað, skipt um gler að hluta.
2020 - Þak: skipt um járn, pappa og rennur
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.