Kambsvegur 30
-
Tegund Hæð/ Hæð í tvíbýlishúsi
-
Stærð 156 fm
-
Herbergi 4
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 3
-
Baðherbergi 2
-
Inngangur Sér
-
Byggingaár 1967
-
Brunabótamat 81.100.000
-
Fasteignamat 103.950.000
Opið hús: Kambsvegur 30, 104 Reykjavík. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 21. október 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] kynnir: Hlýleg 156 fm, 4ra herbergja sérhæð með bílskúr í tveggja íbúða húsi við Kambsveg 30 í 104 Reykjavík.
Íbúðin sjálf er 124,2 fm sem samanstanda af sérinngangi, forstofu, eldhúsi/borðstofu, stofu, 3 svefnherbergjum, gestasnyrtingu, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Sérinngangur og útgengi beint út í sameiginlegan garð úr stofunni. Bílskúrinn er 31,8 fm.
Forstofa: Gengið inn um sérinngang í flísalagða forstofu.
Eldhús / borðstofa: Rúmgott rými með hvítri innréttingu. Parket á gólfi. Tengi er í eldhúsi fyrir tvöfaldan ísskáp.
Stofa: Björt með parket á gólfi og útgengt út á svalir/garð.
Herbergisgangur: Nýlegir fataskápar og parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Nýlegur fataskápur og parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi.
Svefnherbergi III: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað að mestu 2025 og skipt um vatns- og ofnalagnir. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtu. Gluggi er á baðherbergi með opnalegu fagi.
Gestasnyrting: Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með innréttingu og snúrum.
Geymsla: Er inn af þvottahúsi. Í geymslu eru hitamælar fyrir báðar íbúðirnar í húsinu.
Bílskúr: Með hita og rafmagni, var áður stúdíóíbúð, en er nýttur í dag sem geymsla.
Skipt var um glugga í öllu húsinu 2023-2024.
Hús og bílskúr endurmúrað og málað 2023-2024.
Lagnir fóðraðar í húsi og skipt um neyslulagnir árið 2025.
Ofnar fjarlægðir og hiti settur í gólf í öllu húsinu árið 2025.
Allar innihurðir pússaðar og málaðar árið 2025.
Ekkert húsfélag er starfandi í húsinu.
Þak endurnýjað árið 2012 að sögn fyrri eiganda.
Eldhús og þvottahús endurnýjað árið 2008 af fyrri eigendum
Íbúðin er vel staðsett í þessu friðsæla hverfi og í göngufæri við skóla, leikskóla, íþróttir, útivist, leiksvæði og aðra þjónustu.
Allar nánari upplýsingar gefur:
Jason Kristinn Ólafsson, s. 775-1515 - [email protected] - löggiltur fasteignasali
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.