Ljónastígur 2

845 Flúðir
3
0
5
201 m²
91.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 201 fm
  • Herbergi 5
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 0
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1986
  • Brunabótamat 95.250.000
  • Fasteignamat 78.850.000

Betristofan fasteignasala og Hörður Sverrisson, lgf s 899-5209, [email protected] kynna í sölu:
Reisulegt einbýlishús sem stendur á stórri og fallegri lóð í grónu hverfi á Flúðum.


Húsið er klætt að utan með málaðri timburklæðningu, litað járn er á þaki.
Samkvæmt fasteignaskrá er húsið 201,3 fm en inn í því er ekki um 50 fm milliloft yfir bílskúr.
Í heildina má reikna að stærð húsins sé um 250 fm. Bílskúr er tvöfaldur 70 fm.

Lóðin er yfir 3000 fm og er öll í rækt með stórum trjám, blómstrandi runnum og trjám, vel hirtu grasi og garðhúsi.
Á sólpalli (verönd) er heitur pottur.

Hér er um að ræða frábært tækifæri til að eignast eigulegt hús á einum vinsælasta stað landsins þar sem allt er til alls.

Að innan skiptist húsið þannig að á neðri hæð er forstofa, þvottahús, baðherbergi, stofa og eldhús. Á efri hæð er hol, baðherbergi, 3 svefnherbergi og geymsla.

Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa er dúklögð og þar er fataskápur.
Þvottahúsið er rúmgott gólf er lakkað og þar er hurð út á baklóð.
Holið er flísalagt og þar er stigi uppá efri hæð.
Eldhúsið er flísalagt og þar er snyrtileg eldri innrétting. Búr er innaf eldhúsi.
Baðherbergi er flísalagt en þar er er snyrtileg innrétting og góð sturta. 
Stofan er rúmgóð, flísar eru á gólfi og þar er hurð út á sólpall.
Efri hæð:
Alrými er parketlagt. Geymsla er innaf holil.
Barnaherbergin eru tvö og eru þau með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi er parketlagt og fataherbergi er innaf hjónaherberginu. Útgengt er á svalir.
Baðherbergi er parketlagt en þar er góð innrétting og lagnir fyrir sturtu/baðkar.
Góður sólpallur með heitum potti er við húsið.
Bílskúrinn er sérbyggður 70m2 að stærð og eru tvær nýlegar innkeyrsluhurðir á honum. Milliloft er yfir öllum bílskúrnum og er því skipt uppí herbergi og opið rými en milliloftið er ekki skráð í heildarstærð hússins. Auðvelt að útbúa íbúð á eftri hæð bílskúrsins.
Lóðin er 3.147m2 að stærð,  öll gróin og snyrtileg. Gróðurhús með plastklæðningu er á lóðinni.
Innkeyrsla er malbikuð og allt umhverfi er snyrtilegt.

Betri stofan fasteignasala
Borgartún 30 105 Reykjavík
s 519-0100 / 899-5209
[email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Ljónastígur 2, 845 Flúðir

Senda fyrirspurn um eignina