Ásbraut 1
-
Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
-
Stærð 164 fm
-
Herbergi 3
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 2
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingaár 2019
-
Lyfta Já
-
Brunabótamat 120.000.000
-
Fasteignamat 121.300.000
Glæsilega þriggja herbergja efri sérhæð/penthouse með þakvölum út af stofu í vönduðu og vel byggðu húsi við Ásbraut 1 í Kópavogi. Íbúðin nær yfir heila hæð, er með gólfsíðum gluggum, mikilli lofthæð og státar af einstöku útsýni til sjávar og fjalla. Lyfta gengur beint upp í íbúðina af jarðhæð. Tvennar svalir, annars vegar 9 fm (austur/suður) út frá svefnherbergi og hins vegar 52 fm (suður/vestur) þaksvalir, gengið út frá stofu, sem eru hellulagðar með snjóbræðslu. Eignin er skráð 164,8 fm og er með einkastæði í opinni bílageymslu ásamt rúmgóðri geymslu í sameign. Hiti er í öllum gólfum, innfelld lýsing, aukin lofthæð í allri eigninni, vandaðar innréttingar og tæki frá AEG. Eigninni fylgir innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Snjóbræðsla er í aksturs- og gönguleiðum við húsið.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð og rúmgóð með skápum.
Eldhús: Glæsilegt og stórt eldhús með fallegri innréttingu með eyju. Vönduð tæki frá AEG. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Stofa/borðstofa: Einstaklega bjart alrými með eldhúsi sem er bæði stofa og borðstofa með glæsilegu útsýni og kvöldsól. Harðparket á gólfum.
Herbergi: Rúmgott svefnherbergi með harðparketi og góðum skápum.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með harðparketi á gólfum ásamt skápum. Úr hjónaherbergi er gengið út á 9 fm svalir til austurs/suðurs.
Baðherbergi: Upphengt salerni, falleg innrétting, baðkar og sturta. Flísalagt í hólf og gólf með þremur gluggum (tveir opnanlegir).
Þvottahús/geymsla: Flísalagt með innréttingu, vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Geymslan er 23,6 fm. með epoxy-kvarts gólfefni, staðsett á jarðhæð.
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð kjallara einnig með epoxy-kvarts gólfefni.
Gólfhiti er á allri íbúðinni, eikarharðparket í alrými og herbergjum og ljósar flísar í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi. Innfelld ledlýsing er í alrými, svefnherbergi og baðherbergi. Innihurðir eru yfirfelldar, hvítar og allar 2.1m á hæð.
Eignin er staðsett innst í botlanga í friðsælu, rótgrónu og rólegu hverfi í hjarta Kópavogs. Stutt er í verslanir, söfn, kirkju, heilsugæslu sem og fallegar gönguleiðir um Kársnesið og í Fossvoginn.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur [email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.