Meistaravellir 7

107 Reykjavík (Vesturbær)
1
1
2
56 m²
58.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
  • Stærð 56 fm
  • Herbergi 2
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1964
  • Brunabótamat 29.900.000
  • Fasteignamat 49.350.000
Opið hús: 18. október 2026 kl. 16:00 til 16:30.

Opið hús: Meistaravellir 7, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 02. Eignin verður sýnd sunnudaginn 18. október 2026 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] kynnir:  2ja herbergja íbúði við Meistaravelli 7, 107 Reykjavík. Snotur og mjög svo fín 56,3 fm íbúð á jarðhæð/kjallara við sem er merkt 002. Gengið er niður tröppur þegar komið er inní snyrtilegan stigagang. Mögulegt er kannski að kanna með að opna út úr stofu út í garð.

Mjög vinsæl staðsetning í Vesturbænum og stutt í alla helstu þjónustu eins og skóla, sundlaug, íþróttir og fleira.
Bókið skoðun: í síma 775-1515
Lýsing eignar:
Forstofa: Komið inn í forstofu með parketi og innbyggðum fataskáp. 
Baðherbergi: endurnýjað 2018, flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, innrétting og upphengt salerni. 
Svefnherbergi: parketi á gólfi og fataskápum. 
Eldhús: Allt endurnýjarð 2026 og er með nýrri innréttingu, lakkað steingólf og glugga sem snýr út í garð til suðurs.
Stofa: með parketi með glugga sem snýr út í garð til suðurs.
Í sameign er 2,5 fm sérgeymsla, hjólageymsla, sameiginlegt þvottahús sem og þurrkherbergi. 

Húsið var viðgert að utan árið 2021, sprunguviðgert og málað. 
Skipt um gler og glugga eftir þörfum. Þak og niðurföll yfirfarin.  
Skipt um handrið á svölum. Einnig var stigagangur málaður og skipt um teppi.
Sumarið 2026 voru bílastæðin máluð og múrviðgerðir á svölunum sunnanverðu.

Íbúðin er staðsett á vinsælum stað í Vesturbænum, í göngufæri við íbúðina er Grandaskóli, Melaskóli og Hagaskóli, Vesturbæjarlaug sem er ein vinsælasta sundlaug höfuðborgarsvæðisins, Melabúðin, Kaffihús Vesturbæjar, Brauð og Co, Vesturbæjarís og margt fleira. Góðar göngu-, hlaupa-, og hjólaleiðir eru í Vesturbænum og Ægissíðan er þarna skammt frá þar sem hægt er að fara út í Nauthólsvík eða út á Gróttu. 

Allar nánari upplýsingar gefur:
Jason Kristinn Ólafsson, s. 775-1515 - [email protected] - löggiltur fasteignasali


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Meistaravellir 7, 107 Reykjavík (Vesturbær)

Senda fyrirspurn um eignina