Grandavegur 42B

107 Reykjavík (Vesturbær)
1
1
2
78 m²
75.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 78 fm
  • Herbergi 2
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 2016
  • Brunabótamat 57.530.000
  • Fasteignamat 80.600.000

Þórhallur Biering og Betri Stofan  kynna glæsilega 2ja herbergja íbúð á 3. hæð að Grandavegi 42B í vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðinni fylgir mjög gott stæði  (#E52) í lokaðri bílageymslu. Svalir íbúðar eru stórar og nýtast sem hluti af stofu vegna svalarlokunar.  Stutt er í alla helstu þjónustu  svo sem skóla og verslanir. 
 
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvikjastofnun 76,4m2. 

Eldhús er með HTH innréttingu á tveimur veggjum. Hvítur  kvartstein borðum og niðurfelldur vaskur. Undir efri skápum er lýsing og háfur er yfir helluborði. Tveir ofnar, innfelldur ísskápur með frysti og innfelld uppþvottavél. Eldhús er í opnu rými með stofu. Parket á gólfum.
Svefnerbergi er rúmt með fataskápum sem fylla einn vegg. Gluggi snýr til suðurs út á svalir. Parket á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott með stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara inni í hvítum skáp með rennihurðum. Walk-in sturta, upphengt salerni, hvítur handklæðaofn og vönduð HTH innrétting undir handlaug og veggfestum speglaskáp með ljósi. Borðplata er kvartsteinn, eins og í elhúsi. Ljósbrúnar gólfflísar og hvítar háglans veggflísar (30x60 cm.) frá Parka.
Svalir eru með 95% svalarlokun og er 9,4 m2 að stærð og eru ekki inni í heildarfermetrum íbúðar. Svalirnar nýtast sem viðbót við stofurými vegna svalarlokunar og veggfestum rafmagnshitara.
Geymsla íbúðar er í sameign og er hún 9,6 fm. 
Bílastæði íbúðar (E52) er mjög rúmgott og staðsett nálægt inngangi inn í lyftuhús.  Bílakjallari húss er á tveimur hæðum og er bílastæði íbúðar á efri hæð þess. Á efri hæð eru einnig þrjú bílaþvottastæði og 19 gestastæði í sameign allra. Aðkeyrsla í bílakjallara efri hæðar er sunnan við húsið.
Hjóla- og vagnageymslur eru í sameign. Einnig sorpgeymslur.
Lóðin er mjög góð og glæsileg. 

Allar nánari upplýsingar gefur:
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða [email protected] 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Grandavegur 42B, 107 Reykjavík (Vesturbær)

Senda fyrirspurn um eignina