Skildinganes 33
-
Tegund Einbýli
-
Stærð 219 fm
-
Herbergi 5
-
Stofur 2
-
Svefnherbergi 3
-
Baðherbergi 2
-
Inngangur Sér
-
Byggingaár 1975
-
Brunabótamat 129.150.000
-
Fasteignamat 184.750.000
Skildinganes 33, 102 Reykjavík. Vandað og vel skipulagt fimm herbergja 219.4 fm einbýlishús á einni hæð á þessum vinsæla stað í Skerjafirðinum. Húsið er bjart með gólfsíðum gluggum, mikilli lofthæð og fallegum, grónum garði með skemmtilegu útisvæði. Vandað hefur verið til við hönnun að innan og utan þegar eignin var byggð. Innréttingar eru veglegar og eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Rafhleðslustöð er við innkeyrslu. Eignin stendur ofan götu á fallegri 655 fm eignarlóð. Örstutt í gönguleiðir meðfram ströndinni og útivistarsvæði.
Eignin skiptist í:
Anddyri, forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi inn af, tvö góð svefnherbergi sem að tengjast á fataherbergi, aðal baðherbergi, þvottaherbergi, geymslu og bílskúr.
Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í anddyri sem er mjög rúmgott með góðum innbyggðum fataskápum.
Komið er úr anddyri í hol þaðan sem að gengið er í önnur rými eignar, útgengt úr holi á skjólgóða vestur-verönd.
Stofa er mjög rúmgóð og björt, gólfsíðir gluggar sem að gefur mikla birtu í rýmið, arinn er í stofu, veglegar innbyggðar innréttingar í stofu með góðum hirslum, útgengt úr stofu til suðurs út í garð.
Borðstofa er inn af stofurými og er hún rúmgóð.
Eldhús er rúmgott og snyrtilegt með ágætis eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum, steinn er á borðplötum í eldhúsi og á vegg á milli skápa, innbyggð uppþvottavél og gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu, borðkrókur er í eldhúsi. Af herbergjagangi er rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi inn af, baðherbergi er með flísum á gólfum og að hluta á veggjum, upphengt salerni, ágætis innrétting er í kringum vask með skápum og skúffum, steinn í borðplötu, sturtuklefi á baðherbergi.
Tvö góð svefnherbergi eru inn af gangi og tengjast herbergi með fataherbergi sem að nýtt er sem skrifstofa í dag.
Rúmgott aðalbaðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, stór og mikil baðinnrétting er í kringum vask með skúffum og skápum, upphengt salerni og hlaðinn sturtuklefi með glerhurð.
Þvottaherbergi er inn af herbergjagangi, flísar á gólfi og veggjum, ágætis innrétting með efri og neðri skápum og er skolvaskur í borðplötu.
Bílskúr er við hlið hús og er hann rúmgóður með mikilli lofthæð, geymsla er inn af bílskúr.
Mjög gott útisvæði er fyrir framan bílskúr á milli bílskúrs og húseignar, gróin og falleg lóð.
Gólfefni: Parket og flísar er á gólfum eignar.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur [email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.