Hlíðarvegur 42

625 Ólafsfjörður
5
2
6
248 m²
67.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
  • Stærð 248 fm
  • Herbergi 6
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 5
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1974
  • Brunabótamat 122.250.000
  • Fasteignamat 47.700.000

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Hlíðarvegur 42, 625 Ólafsfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 215-4069 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Hlíðarvegur 42 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 215-4069, birt stærð 248.2 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected]


Um er að ræða einbýlishús í hæðum Ólafsfjarðar með frábæru útsýni og suðurpalli. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, samliggjandi stofu og borðstofu, 6 svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi, búri og geymslu. Efri hæð samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, borðstofu, þremur svefnherbergjum og baðherbergi. Neðri hæð samanstendur af forstofu, þremur svefnherbergjum, búri, geymslu, þvottahúsi og baðherbergi. 

Eignin hefur verið endurnýjuð að hluta en búið er að:
-endurnýja þak
-mála og pússa glugga, þakskyggni og grindverk á svölum
-endurnýja eldhús
-endurnýja baðherbergi
-gólfhiti settur á bæði baðherbergi og hluta af neðri hæð. 
-vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar

Anddyri: er á báðum hæðum með flísum á gólfi og ágætis fatahengi. 
Eldhús: var endurnýjað fyrir nokkrum árum með gráum innréttingum, hvítri borðplötu og flísum á gólfi. Mikið útsýni er úr eldhúsi. 
Stofa: liggur saman með borðstofu í opnu rými með útgang út á svalir. Mikið gluggarými er í stofu með útsýni yfir fjörðinn. 
Svefnherbergi: eru í heildina 6 eða þrjú á efri hæð og þrjú á neðri hæð. 
Baðherbergi: eru tvö í eigninni á sitthvorri hæðinni og hafa verið endurnýjuð með hitalögnum í gólfi. 
Þvottahús: er á neðri hæð með innréttingum og flísum á gólfi. Tveir opnanlegir gluggar eru í þvottahúsi. 
Búr: er á neðri hæð með hillum og lökkuðu gólfi. 
Geymsla: er með lökkuðu gólfi og hillum. Inn af geymslu er stigaop sem er búið að loka. 
Bílskúr: er með rafdrifinni hurð og lökkuðu gólfi. Aðgangur er að kaldri geymslu sem er undir bílskúr. Einnig er aðgangur að geymslunni neðan við hús. 
Pallur: timburpallur er sunnan við eign með skjólveggjum. 
Garður: er grasilagður að hluta með steyptri stétt að snúrustaur og aðgangi að geymslurými.  
 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Hlíðarvegur 42, 625 Ólafsfjörður

Senda fyrirspurn um eignina