Borgartún 24B 601

105 Reykjavík (Austurbær)
2
1
3
81 m²
94.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
  • Stærð 81 fm
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2024
  • Lyfta Já
  • Brunabótamat 60.190.000
  • Fasteignamat 81.250.000

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] og Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og kynna: BORGARTÚN 24 - íbúð 601 ásamt stæði í bílageymslu merkt 01B18 í bílakjallara. 3ja herbergja íbúð með svölum til suðausturs. Sameiginlegar þaksvalir eru í húsinu á 4, 6 og 7. hæð með útsýni til fjalla og sjávar.

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 601 í Borgartúni 24a, íbúð merkt 01-0601, F2518387. 3ja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu og rúmgóðum svölum sem snúa út á Nóatúni, til suðausturs. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 81,5 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni sem er 11,3 fm. Svalir snúa í suð-austur. Sérstæði í bílageymslu (B18) fylgir íbúðinni. 

Borgartún 24 er glæsilegt 7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum á 2.-7 hæð og verslunar- og þjónusturýmum á 1. hæð í einu helsta viðskiptahverfi borgarinnar. Í Borgartúni er blönduð byggð íbúða, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við stóra vinnustaði og alla helstu þjónustu, í göngufæri frá miðbænum og Laugardalnum. Byggingin er byggð utan um sameiginlegan inngarð. Á 4. hæð er einnig sameiginlegur þakgarður, á 6. hæð er sameiginlegur þakgarður og á 7. hæð eru sameiginlegar þaksvalir.
 
Frágangur íbúðar að innan: Vandaðar þýskar innréttingar frá Nobilia í eldhúsi, baði og herbergjum (söluaðili er GKS). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki koma frá Siemens, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. Hreinlætistæki frá Grohe.  
Frágangur utanhúss: Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með viðhaldsléttri álklæðningu eða sambærilegu efni. Timbur/ál gluggar. Lóð og bílastæði: Sameiginlegur inngarður er á 2. hæð og sameiginlegar þaksvalir eru á 4. hæð.  30 bílastæði eru á lóð.
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða er einnig á plani við aðalinngang.
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati.

Bókið skoðun: 
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: [email protected]

 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Borgartún 24B 601, 105 Reykjavík (Austurbær)

Senda fyrirspurn um eignina