Laugarvegur 35
-
Tegund Fjölbýli/ Tvíbýli
-
Stærð 128 fm
-
Herbergi 5
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 4
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sér
-
Byggingaár 1954
-
Brunabótamat 59.850.000
-
Fasteignamat 33.450.000
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur [email protected].
Um er að ræða sérhæð með háalofti með miklum möguleikum. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, búr, borðstofu, stofu, 3 svefnherbergjum, baðherbergi með þvottaaðstöðu og háaloft sem býður upp á marga möguleika. Sérbílastæði fylgir eigninni. Húsið hefur verið klætt að utan og einangrað.
Forstofa: er með flísum á gólfi og ágætis fatahengi. Stigagangur er upp á efri hæð úr anddyri.
Eldhús: hefur verið endurnýjað að hluta með viðarlitaðri innréttingu og góðum borðkrók.
Borðstofa: er með parket á gólfi og frábæru útsýni yfir fjörðinn.
Búr: er inn af eldhúsi með góðu hilluplássi og opnanlegum glugga.
Stofa: liggur samhliða með borðstofu með parket á gólfi og góðu gluggaplássi.
Svefnherbergi: eru í heildina 3. Tvö eru á neðri hæðinni og eitt á háaloftinu.
Baðherbergi: er með flísalögðum sturtuklefa, innréttingu, vask og salerni. Flísar eru á gólfi. Þvottaaðstaða er á baðherbergi.
Háaloft: er hrátt en hefur verið hólfað niður að hluta í geymslu og svefnherbergi. Þakgluggi er á háalofti og gólf er steypt.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.