Klapparstígur 7
-
Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
-
Stærð 78 fm
-
Herbergi 3
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 2
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingaár 1999
-
Brunabótamat 47.350.000
-
Fasteignamat 71.500.000
Opið hús: Klapparstígur 7, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 16 01 04. Jason sími 7751515 [email protected] - Eignin verður sýnd miðvikudaginn 14. október 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Jason Kristinn Ólasson, sími 7751515 eða netang [email protected] kynnir: 3ja herbergja íbúð við Klapparstíg 7 í miðbæ Reykjavíkur.
Vel staðsett 78,8 fm þriggja herbergja íbúð á 1. hæð með garði til vesturs. Virkt húsfélag með húsverði.
Nánari lýsing:
Forstofa: Eikarparket á gólfi, fataskápur.
Gangur: Eikarparket á gólfi.
Stofa: Björt með eikarparket á gólfi, gólfsíðir gluggar til vesturs og norðurs.
Eldhús: Snyrtileg eldhúsinnrétting í góðu lagi, flísar milli efri og neðri skápa. Tengi fyrir uppþvottavél. Eldhúsið er hálf opið við stofu. Tæki í eldhúsi eru nýleg. Úr eldhúsi er útgengt út á hellulagða verönd til vesturs.
Hjónaherbergi: Eikarparket á gólfi. Stór skápur sem nær upp í loft með speglahurðum. Gólfsíður gluggi.
Barnaherbergi: Eikarparket á gólfi, fataskápur og veggfastar hillur og borð fylgja með.
Baðherbergi: Flíslagt í hólf og gólf með innréttingu yfir og undir vaski. Baðkar með sturtuaðstöðu.
Geymsla íbúðarinnar er 5,2 fm og er með góðri lofthæð og er í kjallara hússins.
Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni, eingöngu fyrir íbúðir fyrstu hæðar.
Sameiginleg hjóla- og vagna geymsla í kjallara.
Húsvörður er í húsinu; sem einnig sinnir vinnu fyrir Klapparstíg 1-7 og Skúlagötu 10.
Falleg eign með góðu húsfélagi rétt við miðbæinn. Öll helsta þjónusta í göngufæri.
Íbúðir á 1. hæð hafa einkaafnotarétt á lóð allt að 3 metrar frá húsum við stofu íbúðanna. Allar breytingar á lóð eru háðar samþykki húsfélagsins og einnig að þær trufli ekki eðlilega umferð um lóðina.
.Bókið skoðun og nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 löggiltur fasteignasali - [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.