Hjallabraut 4

220 Hafnarfjörður
2
1
3
97 m²
69.500.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
  • Stærð 97 fm
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1969
  • Brunabótamat 49.600.000
  • Fasteignamat 62.950.000
Opið hús: 29. september 2026 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Hjallabraut 4, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 02 01 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 29. september 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Betri Stofan og Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali (s. 775 1515 / [email protected]), kynna:
Einstaklega falleg, björt og mikið endurnýjuð 97,8 fm 3ja herbergja íbúð á 1. hæð (ekki jarðhæð) ásamt rúmgóðum svölum við Hjallabraut 4 í Hafnarfirði. Íbúðin sjálf er 91,3 fm og henni fylgir 6,5 fm sérgeymsla í kjallara.
Eignin hefur gengið í gegnum miklar og vandaðar endurbætur á undanförnum árum, bæði innan íbúðar og á vegum húsfélags. Meðal annars voru baðherbergi (2024) og þvottahús (2025) endurnýjuð að fullu, dregnar nýjar lagnir og komið fyrir gólfhita.
Skipulag eignarinnar: Rúmgóð forstofa með flísum og nýlegum skápum. Björt og falleg stofa með útgengi á svalir. Eldhús með hvítri innréttingu og björtum borðkrók. Baðherbergi endurnýjað 2024 með sturtubaðkari, upphengdu salerni, nýjum lögnum og gólfhita. Þvottahús endurnýjað 2025 með vandaðri innréttingu og gólfhita, en inn af því er nytsamlegt vinnu- eða geymslurými/búr (einnig með gólfhita). Rúmgott hjónaherbergi með nýlegum innfelldum fataskápum (2024), bjart barnaherbergi og sérgeymsla í kjallara.
Frábær staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Norðurbæ Hafnarfjarðar þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, matvöruverslanir og önnur þjónusta. Víðistaðatún er í næsta nágrenni.
Frábært tækifæri til að eignast mikið endurnýjaða og vel skipulagða íbúð á góðum stað!

Yfirlit yfir framkvæmdir (skv. seljanda)
Framkvæmdir innan íbúðar
Ár.  Framkvæmd
2020  Nýir gólflistar settir
2021  Flísalagt í forstofu
2024  Baðherbergi endurnýjað að fullu og nýjar lagnir lagðar
2024  Nýr innfelldur fataskápur í hjónaherbergi
2025  Þvottahús endurnýjað og nýjar lagnir lagðar
2025  Gólfhiti lagður í þvottahús og vinnuherbergi / búr
2025  Nýjar hurðir á svefnherbergi og baðherbergi
2026  Ný hurð á barnaherbergi
Framkvæmdir á vegum húsfélags
ÁrFramkvæmd
2023–2024. Endurnýjun þakrenna og niðurfallsröra
2023–2024. Sprunguþéttingar og steinsteypuviðgerðir
2024  Viðgerð og þétting á þaki
2024. Endurnýjun niðurfallsbrunns
2024–2025  Endurnýjun og fóðrun lagna


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Hjallabraut 4, 220 Hafnarfjörður

Senda fyrirspurn um eignina