Hávegur 3

580 Siglufjörður
2
1
3
75 m²
24.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjórbýli
  • Stærð 75 fm
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1948
  • Brunabótamat 40.950.000
  • Fasteignamat 21.150.000

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Hávegur 3, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 213-0325 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hávegur 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0325, birt stærð 75.1 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur [email protected].


Um er að ræða íbúð í fjórbýli með sérinngang og sameiginlegu háalofti með mikla möguleika. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi,búri, stofu, tveimur til þremur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi, geymslu/herbergi og háalofti. Gengið er inn á efri hæð eignarinnar frá götu. Háloft er sameiginlegt með íbúð við hlið eignarinnar með sérinngangi. Háaloft er skipt til helminga og möguleiki á setja hurð á milli. 

Forstofa: er með flísum á gólfi og ágætis fatahengi. 
Eldhús: er opið frá gangi og stofu með ljósri viðar innréttingu og parket á gólfi. 
Búr: er inn af eldhúsi með opnanlegum glugga og góðu hilluplássi. 
Svefnherbergi: eru tvö á hæðinni og möguleiki á öðru upp á háalofti. Herbergin eru bæði parketlögð og annað með fataskáp. 
Baðherbergi: er inn af forstofu með flísum á gólfi og fibi tresbo plötum á veggjum. Frístandandi sturtuklefi, innrétting, vaskur, salerni, handklæðaofn og vifta. 
Þvottahús: er á háalofti með sér vatnstengi og frárennsli. 
Geymsla: er á háalofti í sérútbúnu herbergi sem möguleiki er á að stækka og nýta sem svefnherbergi. 
Háaloft: í opnu rými fyrir utan herbergi með þakglugga. Margir möguleikar eru á frekari nýtingu. Háaloft er í sameign tveggja íbúða. 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Hávegur 3, 580 Siglufjörður

Senda fyrirspurn um eignina