Háaleitisbraut 109
-
Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
-
Stærð 110 fm
-
Herbergi 1
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 3
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingaár 1964
-
Brunabótamat 58.000.000
-
Fasteignamat 76.600.000
Húsið Háaleitisbraut 109–111 var teiknað af Sigvalda Thordarson og er eitt af síðustu húsunum sem hann hannaði. Stigagangurinn er hringlaga og hönnunarperla, en einungis eru örfáar tröppur upp í íbúðina.
Íbúðin skiptist í rúmgott stofurými (stofa og borðstofa) með nýpússuðu parketi og útgengi á stórar suðursvalir, svefnálmu með þremur svefnherbergjum, baðherbergi og sér þvottahúsi. Íbúðin er skráð 105,4 m², þar af er sérgeymsla á jarðhæð 5,4 m².
Staðsetningin er frábær og fjölskylduvæn. Álftamýrarskóli og tveir leikskólar eru innan hverfis, auk þess sem stutt er í öflugt íþróttastarf Víkings í Safamýri. Leikvöllur og fótboltavöllur eru fyrir aftan húsið. Verslunarmiðstöðin Miðbær er í næsta nágrenni (meðal annars Mosfellsbakarí og ísbúð) og stutt er í Kringluna, Skeifuna og Laugardal. Góðar samgöngur eru á svæðinu.
NÁNARI LÝSING:
Inngangur / Hol: Komið er inn í hol með fataskáp.
Eldhús: Ljós innrétting, gluggi og flotað gólfefni.
Stofa og borðstofa: Bjart og stórt opið rými með miklum gluggum, parketi á gólfi og ljósum viðarpanil í lofti. Útgengt er á stórar svalir sem ná meðfram allri suðurhlið íbúðarinnar.
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi. Hjónaherbergi er með innbyggðum skáp og sérstöku fataherbergi. Barnaherbergin eru tvö, annað þeirra mjög rúmgott.
Baðherbergi: Ljósar flísar, baðkar með sturtuhausi.
Þvottahús: Endurnýjað innan íbúðar, flísalagt og með tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Geymslur & sameign: Sérgeymsla er í kjallara ásamt geymsluskáp rétt fyrir innan inngang blokkarinnar. Í sameign eru tvær hjólageymslur (gengið inn í aðra úr anddyri en hina frá garðinum).
ENDURBÆTUR OG VIÐHALD:
Séreign:
2022: Ný eldvarnarhurð sett í inngang íbúðar.
2021: Gler í stofu endurnýjað (sólvarnargler frá Íspan, fyrir utan svalahurð og opnanleg fög) og svalir filtaðar.
2020: Þvottahús tekið í gegn.
Rafmagn hefur verið endurnýjað að mestu leyti.
Sameign:
2025: Múrviðgerðir á austurhlið hússins, klæðning tekin af og málað í upprunalegum Sigvaldalitum.
2021: Allir gluggar í svefnherbergjum og eldhúsi endurnýjaðir. Norðurhlið hússins máluð og nýr dyrasími settur upp.
2011–2012: Stórt viðhald á blokkinni: Múr- og sprunguviðgerðir, gert við ryðgað bita- og steypujárn, svalagólf löguð og sílanborin, húsið málað og bílskúrshurðir hreinsaðar og málaðar.
Húsið hefur hlotið gott og reglulegt viðhald gegnum árin.
Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 775-1515 | Netfang: [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.