Furugrund 22

200 Kópavogur
2
1
3
75 m²
64.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
  • Stærð 75 fm
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1974
  • Brunabótamat 42.400.000
  • Fasteignamat 59.350.000
Opið hús: 23. september 2026 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús Furugrund 22 íb.103

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í einkasölu: Björt falleg og vel skipulögð 3ja herbergja endaíbúð á 1. hæð í fjölbýli við Furugrund Kópavogi. Eignin telur bjarta rúmgóða stofu með útgengi á svalir, sér eldhús með borðkrók, tvö fín svefnherbergi, baðherbergi, hol og forstofu ásamt geymslu og þvottahúsi í sameign.

Nánari lýsing: 

Anddyri: Parket á gólfi og góður fataskápur.
Stofa: Rúmgóð og fín með góðum gluggum, parket á gólfi og útgengi á fínar svalir.
Eldhús: Sér innan íbúðar, snyrtileg ljós innrétting, flísar á gólfi og borðkrókur.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott herbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp, nýtist í dag sem barnaherbergi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott, parket á gólfi og fataskápur
Baðherbergi: Flísalagt með ljósum flísum, hvít nýleg innrétting, baðkar með sturtuaðstöðu, gluggi á rýminu.
Sameign: Sameign er snyrtileg, þar fylgir sér geymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi ásamt hjóla og vagna geymsla. 
Endurbætur: Búið er að endurnýja / yfirfara þak, þakrennur, glugga íbúðarinnar, skipta um ofna og dyrasímakerfi. Parket er nýlegt ásamt teppi á stigagangi

Þetta er falleg og björt íbúð, staðsett í barnvænu hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar veitir Atli S Sigvarðsson löggiltur fasteignasali í síma 899-1178 eða [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Furugrund 22, 200 Kópavogur

Senda fyrirspurn um eignina