Efstihjalli 7

200 Kópavogur
3
1
4
94 m²
67.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
  • Stærð 94 fm
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1972
  • Brunabótamat 55.900.000
  • Fasteignamat 66.200.000
Opið hús: 01. október 2026 kl. 17:45 til 18:10.

Opið hús: Efstihjalli 7, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 02 03. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 1. október 2026 milli kl. 17:45 og kl. 18:10.

KJARAKAUP - OPIÐ HÚS FIMMTUDAGINN 1. OKTÓBER KL. 17:45

Jason Kristinn fasteignasali í síma 7751515,
 [email protected] og Betri Stofan kynna: Efstihjalli 7 efri hæð þar sem  allt hefur verið tekið í gegn. Að utan hefur húseignin alveg verið tekin í gegn. Gluggar endurnýjaðir, húsið var múrgert og málað,vatnslagnir og dren endurnýjað sem og þak og rennur og húsið málað.  
Um er að ræða snyrtilega 4ra herbergja íbúð á frábærum stað í grónu hverfi í Kópavogi. Suðursvalir. Eignin er skráð 93,9 fm og er vel skipulögð. Eignin skiptist í anddyri, hol, eldhús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, borðstofu, stofu og sér geymslu.  Aðeins 5 mínútna gangur í leikskóla, skóla og matvöruverslun.

Lýsing: 
Gengið er inn í rúmgott flísalagt anddyri/hol sem tengir saman eignina. Á vinstri hönd er eldhús og stofa og hægra megin svefnherbergi og baðherbergi. Útsýni til Esju úr svefnherbergjum.
Stofa er rúmgóð með nýpússuðu parket á gólfi og útgengt út á rúmgóðar suðursvalir. 
Eldhús er með hvítri innréttingu og góðu skápaplássi. Borðkrókur við glugga sem eru nýir. Pláss fyrir uppþvottavél eða þvottavél.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með flísum og baðkar. Þvottaaðstaða er inná baðherbergi og einnig í kjallara.
Hjónaherbergi 1 er með rúmgóðum fataskápum. Parketdúkur á gólfum herbergja. 
Svefnherbergi 2 er með fataskáp. 
Svefnherbergi 3 er án fataskáps
Geymsla er í kjallara er skráð 6,8 fm.
Í kjallara er einnig snyrtilegt þvottahús, hjólageymsla og vagnageymsla.
Staðsetning eignarinnar er góð og stutt er í skóla, verslanir og þjónustu. 
Sunnan megin við húsið er sameiginlegur garður og fjöldi bílastæða fyrir framan hús. 

Nánari upplýsingar:  Jason Kristinn Ólafsson s. 775 1515 löggiltur fasteignasali, [email protected] og Guðbjörg Guðmundsdóttir s.899 5533  löggiltur fasteignasali, [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Efstihjalli 7, 200 Kópavogur

Senda fyrirspurn um eignina