Laugavegur 170 605

105 Reykjavík (Austurbær)
3
2
5
191 m²
259.000.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
  • Stærð 191 fm
  • Herbergi 5
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 2025
  • Lyfta Já
  • Brunabótamat 0
  • Fasteignamat 60.900.000
Opið hús: 11. október 2026 kl. 13:00 til 14:00.

Opið hús sunnudaginn 11.okt kl.13 - bókið skoðun Jason sími 7751515 [email protected]

Jason Kristinn fasteignasali sími 775 1515, netfang: [email protected] og Betri Stofan fasteignasala kynna: Heklureitur -  Laugavegur 170 - 4ra herbergja íbúð, 605.  Glæsileg íbúð á 6. hæð með frábæru útsýni. Suður og norðursvalir. Íbúðin er með 3-4 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, þvottahúsi, búri, stofa og eldhús í opnu rými með rennihurð og 16 fm sérgeymsla fylgir ásamt 2 stæðum í lokuðum bílakjallara.

Þriggja til fjögurra herbergja rúmgóð íbúð þar sem bæði svefnherbergin eru með baðherbergi inn af herberginu (ensuite). Eldhúsið er frábærlega útbúið fyrir matgæðinga þar sem gengið er í gegnum eldhús inn í búr með vaski og plássi sem má innrétta t.d. fyrir stærri vínskáp og auka ísskáp. Þá er möguleiki á að koma fyrir arni í stofu. Í íbúðinni er sér þvottahús. Glæsilega innréttuð íbúð búin öllum nútíma þægindum. 2 stæði í bílageymslu fylgja einnig með íbúðinni, merkt B16 og B17

Heimasíða um Heklureitinn

Í eldhúsi verður eyja, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini, sérframleiddur frá Santamargherita á Ítalíu. Vönduð tæki frá Siemens, sem koma úr StudioLine gerðinni en hún býður uppá úrval glæsilegra tækja sem gera eldamennskuna sérlega þægilega og ánægjuríka. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða baðherbergi eru valin með tilliti til gæða og endingar. Þema innréttinga í þessari íbúð er Náttúra auk spónlagðir efri skápa.

Hafstudio og Studio Homestead koma að hönnun innréttinga og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Kaupendur hafa tækifæri til að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergi, komi þeir tímanlega að borði. 
Íbúðirnar á efri hæðum, hafa einstakt útsýni til fjalla og yfir borgina. 
Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. 

Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga. 
Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut. 

Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: [email protected]
Guðbjörg Guðmundsdóttir s. 899 5533 - [email protected] löggiltur fasteignasali.

Þórhallur Biering Guðjónsson, í síma 896-8232 / [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Laugavegur 170 605, 105 Reykjavík (Austurbær)

Senda fyrirspurn um eignina