Orkureiturinn D1 312

108 Reykjavík (Austurbær)
2
2
3
146 m²
157.000.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 146 fm
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 2025
  • Brunabótamat 0
  • Fasteignamat 102.250.000
Opið hús: 18. október 2026 kl. 12:00 til 13:00.

Opið hús sunnudaginn 18 okt. kl. 12:00 - Bókið skoðun: Jason s. 7751515 - Velkomin í bílakjallarann.

Jason Kristinn s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti Orkureitinn. Glæsilegar nýjar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu. Svansvottaðar íbúðir.

Heimasíða Orkureitsins

Orkureitur - Grensásvegur 4, íbúð 312 er 3ja- 4j herbergja 146 fm íbúð með 13fm geymslu í kjallara og bílastæði í kjallara merkt B043

Flæði íbúðar:
Komið inní anddyri með góðum fataskápum.
Baðherbergi með sturtu. Flísar á gólfi
Hjónasvíta með sér baðherbergi og walk-in fataskápum
Svefnherbergi II er 13,1 fm að innra máli og er með fataskápum.
Eldhúsið er með stein á borðplötum. Glæsileg innrétting frá GKS með eyju. Safír Harmónía /útg 4.
Alrýmið er með gluggum til  austurs og vesturs og þaðan er hægt að ganga út á svalir sem eru 8,3 fm að stærð.  Auðveldlega er hægt að útbúa 3ja svefnherbergið á kostnað sjónvarpshols sem er í enda stofu. Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði. 
Sérgeymsla er 13 fm.
Innréttingaþema er Safír Harmonía útg. 4. Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora. 

Nánar um Orkureitinn: 
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.

Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027. 

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar:
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: [email protected]
Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866-1763 - tölvupóstur: [email protected]

 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Orkureiturinn D1 312, 108 Reykjavík (Austurbær)

Senda fyrirspurn um eignina