Stekkholt 57

210 Garðabær
3
2
5
215 m²
164.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
  • Stærð 215 fm
  • Herbergi 5
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2026
  • Brunabótamat 0
  • Fasteignamat 14.100.000
Opið hús: 11. október 2026 kl. 15:15 til 15:45.

Opið hús sunnudag 11.okt frá kl. 15:15-15:45 Guðbjörg Sími: 899 5533 , [email protected]

Betri Stofan og Guðbjörg Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali kynna:  Einstaklega  vel skipulagt raðhús með innbyggðum bílskúr, við Stekkholt 57, í Hnoðraholti, Garðabæ. Eignin er skráð 215,8 fm. og skiptist í þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol, 2 baðherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, anddyri og bílskúr. Frá stofu er gengið út á góðar suðaustur svalir.

Eignin skilast tilbúin til innréttinga að innan skv. skilalýsingu. Að utan skilast húsin frágengin, einangruð að utan og klædd álklæðningu, Velfac ál/tré gluggar.
Bílastæði hellulagt með snjóbræðslu undir. Lóð skilast að öðru leiti grófjöfnuð samkvæmt skilalýsingu. 
Nálgist skilalýsingu og nánari upplýsingar hér:

 Nánari lýsing:
Stekkholt 57 er fallegt raðhús í nýrri fjögurra húsa raðhúsalengju sem nú er í byggingu í Hnoðraholti Garðabæ. Frá götu er aðkoma að efri hæð hússins þar er innbyggður bílskúr, stórt anddyri, stofa, eldhús, borðstofa og baðherbergi. Úr stofu er gengið út á góðar svalir til suðausturs.
Á neðri hæð er hjónaherbergi, tvö rúmgóð barnaherbergi, yfir 10 fm., sjónvarpshol, rúmgott baðherbergi, þvottahús og geymsla.  
að innan skilast húsið tilbúið til innréttinga, veggir spartslaðir og grunnaðir, vinnurafmagn í herbergjum, gólfhitalagnir tilbúnar fyrir stýrikerfi.

Um er ræða glæsileg og vel skipulögð raðhús í nýju og skemmtilegu hverfi í Garðabæ. Hnoðraholt er vel staðsett nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu og gott aðgengi er að útivistasvæðum Garðabæjar svo sem Heiðmörk, Vífilstaðavatni og golfvelli GKG. 
Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati.

Nánari upplýsingar Veita: 
Guðbjörg Guðmundsdóttir í síma 899 5533 netfang: [email protected]   
Þórhallur Biering Guðjónsson í síma 896 8232  netfang: [email protected] 
Jason Kristinn Ólafsson í síma 775 1515 netfang: [email protected] 


** Viðskiptavinir Betri Stofunnar njóta sérkjara hjá Verslunum Ormsson ehf. við kaup á innréttingum og heimilistækjum vegna Stekkholt 55-61**


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Stekkholt 57, 210 Garðabær

Senda fyrirspurn um eignina