Laugavegur 168 (802), 105 Reykjavík (Austurbær)
380.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
236 m2
380.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
3
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
50.400.000

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og Jason Kristinn fasteignasali sími 775 1515 kynnir: Glæsilega og rúmgóða 236,9 fm íbúð á efstu hæð við Heklureitinn. Laugavegur 168, íbúð 802. Íbúðinni tilheyrir 12,7 fm sérgeymsla og 2 sérmerkt stæði í bílageymslu. Fáið kynningu hjá sölumönnum Betri Stofunnar.

Kynningarbæklingur fyrir þakíbúðirnar

Þetta er stærsta íbúðin í byggingunni, Laugavegi 168 með stórbrotnu útsýni, yfir borgina til suðurs, vesturs, austurs og norðurs til fjalla og sjávar. Rúmgóð íbúð með stórum 96,9 fm þakgarði sem snýr til austurs og suðurs, þar sem gert er ráð fyrir heitum potti. Rennihurð frá stofu, þakgarður í sömu hæð. Stórar stofur, glæsilegt eldhús með eyju. Gert er ráð fyrir arni í stofu. Glæsileg hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi og að auki er skrifstofa, eða annað herbergi með sér baðherbergi. Gólfhiti er í íbúðinni. Sér þvottahús auk gestasnyrtingu. Geymsla og tvö bílastæðið, nr. B03 og B04 fylgja eigninni. Möguleiki er að breyta innra skipulagi íbúðar, t.d. með því að færa eldhús, vera með 4 svefnherbergi, betri stofu ofl. 

Í eldhúsi er eyja, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini, sérframleiddur frá Santamargherita á Ítalíu. Vönduð tæki frá Siemens, sem koma úr StudioLine gerðinni en hún býður uppá úrval glæsilegra tækja sem gera eldamennskuna sérlega þægilega og ánægjuríka. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða baðherbergi eru valin með tilliti til gæða og endingar. 

Hafstudio og Studio Homestead koma að hönnun innréttinga og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Kaupendur hafa tækifæri til að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergi, komi þeir tímanlega að borði. 
Íbúðirnar á efri hæðum, hafa einstakt útsýni til fjalla og yfir borgina. 

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. 

Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga. 
Örstutt er í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut. 
Afhending miðast við september 2025

Heimasíða verkefnis

Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina: Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 15 15 - löggiltur fasteignasali - [email protected]
 





Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.