Reykjastræti 7, 101 Reykjavík (Miðbær)
156.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
135 m2
156.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2019
Brunabótamat
84.390.000
Fasteignamat
140.100.000

Betri Stofan og Jason Kristinn fasteignasali sími 775 1515 kynnir: 131,6 fm útsýnisíbúð á næst efstu hæð við Austurhöfn, sem er í hjarta miðbæjarins í Reykjavíkurhöfn.
Sérmerkt stæði í bílakjallara með grunntengingu fyrir hleðslustöð.

Einstök íbúð á einstökum stað í næsta nágrenni við Hörpu.
Húsgögn geta fylgt með.

Íbúðin er á 5. hæð og nýtur útsýnis til miðbæjar og fallegan inngarð Austurhafnar, sem er lokaður garður.

Fyrir framan íbúð er lokað rými sem nýtist sem aukaforstofa og er ca 4 fm en er ekki í skráðum fm.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með miklu skápaplássi þaðan er gengið inn í alrými með stóru eldhúsi með eldunareyju.
Útgengt er á tvennar svalir sem snúa annars vegar í austur með útsýni til Hörpu og svo vestursvalir í inngarð með seinni parts sól. 
Baðherbergi með sturtu, baðkari og rými fyrir þvottavél og þurrkara. 

Svefnherbergið er mjög rúmgott og er með fataherbergi, hægt er að breyta hluta af stofu í svefnherbergi nr. 2

Sérsmíðaðar innréttingar með þykkari spón frá ítalska fyrirtækinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum.
Kvarts steinborðplötur við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyju er klætt marmaraflísum.
Afar vönduð tæki í eldhúsi frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, frystir, vaskur og blöndunartæki.
Snjallheimiliskerfi til að stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi o.fl.

Íbúðin hefur aðgang að bílstæði í bílageymslu, merkt B85. Hægt er að aka í kjallarann frá höfninni einnig er hægt að keyra í bílageymslu úr innkeyrslu Hörpu og einnig frá Hafnartorgi.
Íbúðirnar eru vel staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu.

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] löggiltur fasteignasali.





Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.