Gleðilega vaxtalækkun
Í vikunni tilkynnti Ásgeir Jónsson að stýrivextir lækkuðu um 50 punkta. Kærkomin lækkun og í dag eru stýrivextir Seðlabankans því "aðeins" 8,5%. Þetta þýðir að venjuleg íslensk fjölskylda hefur meira á milli handanna í lok mánaðar. Ég sel stundum fasteignir og þegar aðili er að kaupa sína fyrstu íbúð, þá fæ ég alltaf spurninguna: “Hvað þarf ég að eiga mikið til að kaupa íbúð?” Svarið er 15%.
Dæmi: Meðalverð á íbúð sem ég sel er í kringum 75 millj. Bankinn lánar rúmar 63 millj og 15% eigið fé er þá 12 millj. Þetta eru víst kaupin á eyrinni. Næsta mál er að standast greiðslumat og það er gerður fyrirvari um það sem oftast gengur eftir. Mánaðargreiðsla er að vísu há og sem betur fer eru launin líka há á Íslandi. Ef við horfum á það hvað sparast með lækkun stýrivaxta, þá er hver vaxtalækkun um 0,5% rúmlega ca 290 þús kjarabót á ári fyrir þessa fjölskyldu. Hún gæti þá mögulega borgað inná lánið og styrkt eignastöðu sína í íbúðinni.
Segjum að Ásgeir Seðlabankastjóri ákveði að lækka vextina alveg niður í 6,5% árið 2025, sem er mín von. Þá mun það hafa þau áfhrif að sami aðili á þá óvænt 1,2 millj meira í vasanum sínum í lok árs.
Þessi vaxtalækkun hefur góð áhrif alla sem vilja eiga þak yfir höfuðið og ekki veitir af þegar gos stendur yfir í næsta nágrenni, þar sem margir hafa þurft að yfirgefa Grindavík og finna nýtt þak yfir höfuðið fyrir sínar fjölskyldur undanfarna mánuði. Við þurfum að standa þétt og vinna saman með því fólki.
Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515, löggiltur fasteignasali.