Hvernig er markaðurinn?
Þetta er sjálfsagt algengasta spurningin sem við fasteignasalar fáum þegar við mætum áhugasömu fólki um markaðinn. Langflestir Íslendingar hafa áhuga á fasteignum og skoða þær á svokallaða internetinu alveg út og inn, bara til að fylgjast með. Kannski hefur verðurfar eitthvað með það að gera að við hér á Íslandi þurfum góð heimili og jafnvel betri stofur. Þrátt fyrir að fólk sé ekki í kaup- eða söluhugleiðingum þá er það mjög annt um markaðinn íslenska. Auðvitað skoðar það líka eignir á Spáni og lætur sig dreyma.
Næst algengasta spurningin sem ég fæ: Hvernig á unga fólkið að komast inná markaðinn?
Undanfarin 10 ár hefur svarið verið; "Það er nóg að gera og salan er ótrúlega góð." og líka “Það hefur alltaf verið erfitt að kaupa sér fyrstu íbúð og vonandi kemst fólk í gegnum greiðslumat.”
Svarið sem ég fæ þá til baka er oftast: “En við heyrðum það í fréttum að það seldist ekki neitt því allt væri orðið svo dýrt"!
Nú eru góð ráð dýr því salan hefur verið góð!
Mikið rétt, það er jú allt orðið ótrúlega dýrt en þá reyni ég að útskýra betur, að það kosti einfaldlega meira að byggja íbúðir en áður. Það er lóðarskortun, laun hafa hækkað osfrv. Þrátt fyrir það er salan góð. Mikilvægt er að byggja meira og hraðar fyrir okkur öll sem búa á Íslandi.
Á skemmtilegum morgunfundi Arion Banka um Áskoranir og horfur á fasteignamarkaðnum sem ég sótti í vikunni þá komu fram staðreyndir sem ég áttaði mig ekki á. Sigurður frá Aflvaka útskýrði þróun á fólksfjölda, samsetningu þeirra og í takti við nýbyggingar. Meðaltal nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu á ári hefur verið um 1.600 íbúðir síðastliðin 10 ár. Samkvæmt talningu HMS mun fjöldinn á árunum 2024-2026 að meðaltali stefna í að vera um 1.600 íbúðir. Þarfir markaðar hafa merira verið um 3þús nýjar íbúir á ári. Vegna fólksfjölgunar þá þurfum við í raun að byggja um 4.500 nýjar íbúðir á ári. Á hverju ári skuldum við það að byggja um 3000 íbúðir til að halda jafnvæginu.
Í stuttu máli; "Takk fyrir að spyrja. Salan gengur vel og við þurfum nauðsynlega að byggja meira."
Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515, löggiltur fasteignasali. www.betristofan.is