Opið hús: 12. maí 2024 kl. 13:00 til 13:30.Jason Ólafsson, fasteignasali, sími 775 1515
netfang:
[email protected] - bókið skoðun
Opið hús frá kl. 13
Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] kynnir: SÝNUM DAGLEGA BORGARTÚN 24Glæsilegar nýjar íbúðir í vel staðsettu fjölbýlishúsi í Borgartúni í Reykjavík. Íbúðir afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, innbyggðum eldhústækjum og gólfefnum. 2 stæði í bílageymslu fylgja. Þaksvalir í suður. Útsýni til sjávar.
https://b24.is/?ref=betristofanUm er að ræða nánar tiltekið íbúð
505 í Borgartúni 24b, íbúð merkt 01-0505, F2518382. 4-5 herbergja horn/endaíbúð með þakgarði. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 191,6 fm, þar af er íbúðarrými 154,8 fm og sérgeymsla er 36,8 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, hjónasvítu með fataherbergi og sérbaðherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sérþvottahús. Stór sérgeymsla fylgir íbúðinni. Svalir snúa í norður, vestur og stórar þaksvalir í suður. Tvö sérstæði í bílageymslu (B15 og B16) fylgja íbúðinni.
Borgartún 24 er glæsilegt 7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum á 2.-7 hæð og verslunar- og þjónusturýmum á 1. hæð í einu helsta viðskiptahverfi borgarinnar. Í Borgartúni er blönduð byggð íbúða, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við stóra vinnustaði og alla helstu þjónustu, í göngufæri frá miðbænum og Laugardalnum. Byggingin er byggð utan um sameiginlegan inngarð. Á 4. hæð er einnig sameiginlegur þakgarður, á 6. hæð er sameiginlegur þakgarður og á 7. hæð eru sameiginlegar þaksvalir.
Frágangur íbúða að innan: Vandaðar þýskar innréttingar frá Nobilia í eldhúsi, baði og herbergjum (söluaðili er GKS). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki koma frá Siemens, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. Hreinlætistæki frá Grohe.
Frágangur utanhúss: Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með viðhaldsléttri álklæðningu eða sambærilegu efni. Timbur/ál gluggar. Lóð og bílastæði: Sameiginlegur inngarður er á 2. hæð og sameiginlegar þaksvalir eru á 4. hæð. Í bílakjallara eru 39 bílastæði, þar af 4 fyrir hreyfihamlaða, og 30 bílastæði eru á lóð. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða er einnig á plani við aðalinngang.
Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð.
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati.
Bókið skoðun:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: [email protected]
Atli S. Sigvarðsson, sími 899 1178 - löggiltur fasteignasali. - netfang: [email protected]
Gunnar S. Jónsson, sími 899 5856 - löggiltur fasteignasali. - netfang: [email protected]
Páll Þórólfsson, sími 893 9929 - löggiltur fasteignasali. - netfang: [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.