Kálfhólabyggð 11, 311 Borgarnes
29.900.000 Kr.
Sumarhús
3 herb.
53 m2
29.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1989
Brunabótamat
23.250.000
Fasteignamat
21.350.000

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og Jason Kristinn kynnir: Sumarhús með útsýni við Kálfhólabyggð 11, í landi stóra Fjalls í Borgarbyggð, örstutt frá Borgarnesi.
Leiðarlýsing, inná ja.is  

Komið inn í samliggjandi eldhús og stofu.  Eldhúsinnrétting með helluborði, ofni, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, stór eyja sem hægt er að sitja við. Svefnherbergin eru tvö, vínyl parket á öllum gólfum.
Baðherbergi með sturtuklefa og rúmgóðri innréttingu.

Skv. HMS (fasteignaskrá) er hann skráður fm 53,4 en er í raun 63,4 fm, þar sem bætt var við 10 fm baðherbergi.
Nýir pallar að framan og aftan, 9 fm geymsluskúr með fullri lofthæð og rafmagni (þar er td. ísskápur með frysti).
6 manna Softub, rafmagnspottur fylgir.
Húsið og geymsluskúr eru kynnt með rafmagnsofnum. 

Fallegt útsýni til fjalla.

Ástand: 
Nýtt þak, nýtt eldhús, nýtt bað, ný gólfefni (vínylparket), nýr hitakútur.

Málaður að utan og innan árið 2023

Húsgögn geta fylgt með ef það er kostur fyrir kaupanda. 
Húsið stendur á 0,7 hektara leigulandi og er leigan mjög góð eða 66þus kr. á ári. 

Leiðarlýsing: Ekið frá Reykjavík gegnum Borgarnes og áfram í norðurátt þar ti komið er að skilti á vinstri hönd "Stóra Fjall, Valbjarnarvellir" þar er beygt til vinstri frá Þjóðveginum, síðan er beygt til hægri afleggjarann "Stóra Fjall" rétt áður en komið er að bænum er beygt til vinstri og aftur til vinstri þar sem vegur kvíslast, ekið fram hjá nokkrum bústöðum vinstra megin við þar sem komið er að nýlegu opnanlegu stálhliði á vinstri hönd, þar stendur Asparbarð,þar er beygt inn.

Allar nánari upplýsingar gefur Jason Kristinn sími 775 1515 - [email protected] löggiltur fasteignasali.





Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.