Betri Stofan fasteignasala kynnir: afar glæsilega 108,0 fermetra 3ja herbergja útsýnisíbúð á annari hæð með rúmgóðum svölum með til suðurs við Holtsveg 16 í Garðabæ. Fallegt lyftuhús byggt árið 2016. Aðeins tvær íbúðir á hæðinni. Íbúðin er björt og með stórum gluggum suðvesturs og norðvesturs. Virkilega vel skipulögð íbúð með stóru alrými. Stór svefnherbergi (hjónaherbergi sérstaklega stórt) með góðum skápum sem ná upp í loft. Vandað eldhús með stórri stein eyju. Myndavéladyrasími er í húsinu og dimmerar á alrýmum og hjónaherbergi.
Um er að ræða afar fallega íbúð á eftirsóttum stað við Holtsveg í Garðabæ. Útsýni frá íbúðinni til suðvesturs yfir Urriðavatn og til fjalla. Lóðin er vel hirt með tyrfðum flötum, stéttum með snjóbræðslu, kvöldlýsingu og gróðri þess á milli. Rafhleðslustaurar á lóðinni og næg bílastæði. Húsin eru fallega hönnuð og sá VHE ehf. um framkvæmd á húsinu og innanhúshönnuðurnir Berglind Berndsen og Helga Sigurbjarnadóttir hönnuðu innréttingar.
Staðsetning er virkilega góð þar sem stutt er í verslanir, veitingastaði, kaffihús, leikskóla, grunnskóla og glæsileg útivistarsvæði. Oddur golfvöllur, Urriðavatn og Heiðmörk í göngufjarlægð. Staðsetning í lokuðum rólegum botnlanga.
Nánari lýsing:
Forstofa: Með parketdúk á gólfi og góðum innbyggðum skápum sem ná upp í loft.
Eldhús: Með parketdúk á gólfi og fallegri dökkri eldhúsinnréttingu með stórri eldhúseyju. Bosch bakaraofn, Electrolux helluborð og uppþvottavél. Lýsing undir efri skápum og gluggar til norðurs. Eldhús er opið við borðstofu og stofu.
Borðstofa: Er rúmgóð, með parketdúk á gólfi og stórum gluggum til norðurs. Borðstofa er opin við eldhús og stofu.
Stofa: Er rúmgóð með parketdúk á gólfi og gólfsíðum gluggum til suðurs. Útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til suðurs með útsýni yfir Urriðavatn og til fjalla.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta á veggjum. Flísalögð sturta með glerþili, falleg innrétting við vask. Upphengt innbyggt salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi: Er stórt með parketdúkur á gólfi, góðum innbyggðum skápum sem ná upp í loft og gluggum til norðurs og austurs.
Svefnherbergi: Er rúmgott með parketdúk á gólfi og glugga til suðvesturs. Góðir skápar. útsýni yfir Urriðavatn og til fjalla.
Sérgeymsla: Í kjallara sem er 8,0 fermetrar. Málað gólf og snyrtileg.
Í sameign er aðgengi að: Sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu sem er snyrtileg með máluðu gólfi. Stigagangur og sameign er mjög snyrtileg.
Um er að ræða frábæra staðsetningu í Urriðaholti í Garðabæ þar sem stutt er í fallegar göngu- og hjólaleiðir.
Allar nánari upplýsingar veitir Páll Þórólfsson í síma 893-9929 eða [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.